Langar þig að sjá flíkurnar í eigin persónu, þreifa á efnunum, máta og spegla þig aðeins? Þá máttu einfaldlega kíkja í kaffi! 

Ég er ekki með hefðbundna verslun heldur er lagerinn minn heima hjá mér. Hér er því enginn glansandi verslunarsalur eða fullkomin lýsing – bara venjulegt heimili, falleg föt, kaffibolli og notaleg stemning. Og þú ert hjartanlega velkomin! 

🕒 Hvenær má kíkja?

Eftir kl. 17 á virkum dögum, þegar ég er komin heim úr vinnunni og búin að ná áttum! Um helgar er meira svigrúm.

👭 Komdu ein eða með góðum félagsskap!

Taktu vinkonu með, kærastann eða jafnvel allan saumaklúbbinn. Hér má máta, spegla sig, fá álit, spjalla og hafa gaman.

Eigimenn, kærastar, kærustur og aðrir sem eru í leit að einhverju fallegu handa konunni í lífi sínu mega að sjálfsögðu líka kíkja í kaffi. Hér leynist ýmislegt sem gæti komið sér einstaklega vel þegar jólin nálgast, Valentínusardagurinn birtist allt í einu í dagatalinu, afmæli gleymdist næstum því – eða þegar þig langar einfaldlega að vera ótrúlega bestur alveg að ástæðulausu.

Og ef þú hefur ekki hugmynd um hvað þú átt að velja? Það er allt í lagi. Ég þekki fötin mín nokkuð vel

🥂 Gerum meira úr heimsókninni?

Fyrir hópa sem vilja koma um helgi er hægt, eftir samkomulagi, að bjóða upp á léttar veitingar, jafnvel snittur og hvítvín, og gera smá saumaklúbbshitting úr þessu.

💌 Langar þig að kíkja?

Sendu mér skilaboð og við finnum tíma sem hentar.

📍 Kaffið er á Ólafsfirði – aðeins um 45 mínútna rúntur frá Akureyri.