29.900 kr

Púffa svört er létt og þægileg kápa. Hún er með stórum Púff ermum sem þrengjast niður handlegginn. Hún er í A-sniði og á henni eru vasar. Efnið er er mjög þægilegt viðkomu og er oft notað í búningahönnun.

Aðeins ein kápa var gerð úr þessu efni (fyrir utan þá sem ég ætla að eiga sjálf).

Kápan er í stærð L (44/46)

Þvo skal kápuna á röngunni á 30° köldu vatni eða í höndunum. Setjið á herðatré og látið þorna. Flíkin má ekki fara í þurrkara. Má strauja á lágum og vægum hita án gufu.